Heil og sæl
Jæja, þá er loksinns komið almennilegt veður, hérna á heiðinni. Ótrúlegt hvað allt verður eitthvað léttara þegar vel viðrar. Í vinnunni er klikkað að gera, þannig að dagarnir eru fljótir að líða, sem er gott. Á næstu 5 virku dögum stendur til að steypa 476m3 af steypu, þannig að það er eins gott að ekkert klikki, maður verður að vera með opin augun, reyna að koma í veg fyrir mistök, helst áður en þau gerast. Hjá okkur eru staddir tveir Japanir, sem eru komnir gagngert til þess að tryggja að engin mistök eigi sér stað, varðandi bolta sem túrbínurnar eiga að standa á, og eru skekkjumörkin +/- 2mm. og verð ég að segja, smiðunum okkar til hróss að eftir að Það er búið að mæla 70% þá hafa ekki fundist neinar skekkjur. Nú er bara að krossa puttana og vona að restin sé eins góð og það sem búið er. Nú er að fara í hönd sá tími sem hvað flestir fara í sumarfrí, svo það verður spennandi að sjá hvernig okkur gengur að halda áætlun. Annars er það fyndið með okkur Íslendingana, að það kemur okkur alltaf jafn mikið á óvart að starfsmennirnir skuli ætla sér í sumarfrí, svolítið ólíkir dönunum að þessu leyti, t.d. allar tímaáætlanir eru miðaðar við að allir séu á staðnum, allt sumarið, þannig að þettu verður pínku krefjandi.
Á fimmtudaginn í næstu viku fer restin af stelpunum mínum að tínast til landsinns, þær ætla að fara á undan mömmu sinni, til þess að geta notið þess að láta ömmur sínar og afa dekra aðeins við sig, og auðvitað vera með vinum sínum, vá hvað það verður gaman að hitta þær.
Yfir og út
fimmtudagur, 28. júní 2007
föstudagur, 22. júní 2007
Veiði

Að fara að veiða, er líklega, það skemmtilegasta sem ég geri í frístundum mínum. Að fara með góðum hóp, að veiða getur verið ómetanlegt. Fyrir nokkrum árum varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að fara með tveimur félögum mínum í Vatnsá, sem rennur úr Heiðarvatni, rétt fyrir ofan Vík í mýrdal. Þetta er einn fallegasti staður sem ég hef komið á á Íslandi, og áttum við þar frábæra daga saman. Eftir þennan túr var einróma ákveðið að þessa á myndum við heimsækja reglulega í framtíðinni. En, það kom babb í bátinn, Svisslendingur nokkur, tók sig til og keypti upp allar jarðir sem að ánni koma, og hefur, frá þeirri stundu, haldið ánni, fyrir sig. Nú spyr ég, er þetta í lagi? Hvað fyndist fólki ef einhver myndi kaupa einhverja af náttúruperlum okkar? Kannski eru fáir að pæla í þessu vegna þess að þetta snertir ekki svo marga? Ég veit ekki með ykkur, en ég persónulega er ekki sáttur. Mér finnst að ef útlendingar geta keypt ár eins og þessa og haft þær út af fyrir sig, þá sé eitthvað að. Ég er pottþéttur á því að Íslendingur gæti aldrei keypt eitthvað ámóta í Sviss og haft það út af fyrir sig. Kannski er ég svona vitlaus, en ég vill að að þessi þróun verði stöðvuð, og það strax. Hann má alveg eiga þetta fyrir mér, en hann á ekki að geta komið í veg fyrir að Íslendingar geti áfram veitt í ánni, því það finnst mér að ætti að vera stjórnarskrárbundinn réttur okkar.
Yfir og út
þriðjudagur, 19. júní 2007
Vá....
Fór í dag í starfsviðtal, hjá forstjóranum, varðandi áframhaldandi starf hjá fyrirtækinu. Það er skemmst frá því að segja að ég er orðinn fastur starfsmaður hjá ÍSTAK. Vá skrýtin tilfinning. Á annan bóginn er ég rosa glaður að vera búinn að landa góðum samningi, og á hinn bóginn dapur að vera búinn að koma mér í þá aðstöðu að ég skuli vera staddur hér á Íslandi, meðan fjölskyldan mín er úti í danmörku. Það jákvæða er að ég er búinn að tryggja eina heimferð í mánuði, til þess að vera með þeim. Við sjáum hvað setur....
Yfir og út
Yfir og út
fimmtudagur, 14. júní 2007
mánudagur, 11. júní 2007
Dagur 49

Heil og sæl
Langt síðan ég hef bloggað, enda hefur fátt spennandi verið að gerast hjá mér. Á föstudaginn fór ég heim til mömmu og pabba til að skipta um tvær rúður hjá þeim, eitthvað sem átti ekki að taka meira en tvo tíma, en viti menn, snillarnir sem settu rúðurnar í á sínum tíma gjörsamlega steyptu þær í kítti, þannig að það var ekkert annað hægt en að mölva þær (og láta litla bróður sópa upp brotunum, tíhí) þetta tveggja tíma djobb endaði svo sem fimm tíma puð. En ég fékk gott að borða hjá mömmu, þannig að allir voru sáttir. Á laugardagsmorguninn fór ég að hjálpa félaga mínum, honum Arnari að smíða sólpall, fyrir framan nýja húsið hanns, andlega hafði ég engu gleymt, en líkamlega var ég alveg týndur, össss. Um kvöldið fór ég síðan að hitta Björgvin, og stungum við úr nokkrum baukum, áður en við drifum okkur niður í bæ, en þar voru fyrir þeir Bjarni og Per, snillingur, sem alltaf fer á kostum. Við fórum fyrst á Dubliners, en þar var trúbador alveg hreint fjandi góður, það er ekkert smá skrýtin tilfinning að sitja inni á stað eins og Dubliners án þess að vera að kafna úr sígarettureyk, þetta er alger snilld, snilld, snilld. Eftir þetta fórum við á Nasa, en þar voru tónleikar með Sssól, ég hef aldrei komið þangað áður, hvílíkur staður, var einmitt að spá í hve mörgum góðum tónleikum ég hef misst af í þessu húsi, þarna var alveg þrælgaman. Eftir þetta fórum við bjöggi að leita okkur af leigubíl , það tók drjúgan tíma og fundum við loks einn uppi á Hlemmi. Daginn eftir dreif ég mig aftur til hanns Arnars til að vinna í sólpallinum, og eftir það var mér boðið í lambalæri heima hjá Trausta og Elínu í nýja húsinu þeirra í Hafnarfirðinum, þegar við höfðum sporðrennt matnum, fórum við Arnar á FH/Fylkir á kaplakrika, þvílík heppni því þetta var líklega einn besti leikur tímabilsinns, slagsmál, rauð spjöld og alles, og ég verð að segja að Fylkismenn stóðu sig með prýði, þótt þeir hefðu ekki getað nýtt öll færin sem þeir fengu. Í dag er ég búinn að vera með með strengi og harðsperrur af verstu sort en er þó miklu skárri eftir sundferðina mína áðan
Yfir og Út
laugardagur, 2. júní 2007
Dagur 40.

Heil og sæl
Ég verð nú að segja að veðrið á Hellisheiðinni er nú ekki spennandi, þessa daganna. Það er búið að vera rok í marga daga, og í dag bættist við þessi líka rigningin, svona til þess að gera þetta ennþá meira spennandi. Ég verð að segja að Danmörk lítur ekki illa út, héðan af heiðinni, hvað veðurfar varðar. Um kl. 3 í dag stytti þú skyndilega upp og vindur hægðist, það var ekki slæmt því að ég og Björgvin, vinur minn drifum okkur á landsleik milli Íslands og Liechtenstein, það er skemmst frá því að segja að veðrið var það eina sem hægt var að njóta, á Laugardalsvellinum, oft hefur Íslenska liðið verið lélegt, en sjaldan sem í dag, það var einna hellst, gamli maðurinn, hann Brynjar Björn, sem nennti þessu. Við sluppum út úr leiknum með jafntefli, sem er skammarlegt. Jæja nog komið af rausi í bili.
Yfir og út
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)