sunnudagur, 29. apríl 2007

Dagur 5,6 og 7


GLÆSILEGUR SYSTKYNAHÓPUR

Heil og sæl.

Af mér er það hellst að frétta að ég hef unnið mikið og finnst það óskaplega spennandi, sem ég er að gera. Í gær laugardag fórum ég og Helgi að skoða orkuverið sem er tilbúið, vá þetta er rosa flott, og virðist ekki vera neitt allt of flókið, ef rétt er haldið á spöðunum, úff.... Í gærkvoldi fór ég í mat til tengdó, og fekk þar alveg meiriháttar lambalærisneiðar í raspi, namm,namm. Ég fékk tengdamóður mína til þess að stinga í vél fyrir mig óhreinum þvotti. (takk stína) Ég gisti síðan þar. Eftir hádegið í dag var ég síðan mættur í vinnuna til þess að vera tilbúinn með pöntun sem á að fara á morgun. Óskar mágur og Róbert vinur hanns kíktu í kaffi í dag, og sátum við og spjölluðum í nokkra stund, það var frábært að vera búinn að fá fyrstu heimsóknina. Nú er ég farinn að sjá tvöfallt og ætla að fara að drífa mig í koju.

Yfir og út.

fimmtudagur, 26. apríl 2007

Dagur 4

Heil og sæl.

Dagurinn í dag er búinn að vera ansi hreint spennandi, strax í morgun var ég settur í að magntaka, steypu, steypumót og járnbendingu. Þetta fór nú ekkert sérstaklega hratt af stað hjá mér en tottaðist, þegar leið á daginn komst ér að því að kollegi minn hann Helgi Valur (sem er nýútskrifaður tæknifræðingur úr Vitus Bering) s.s. hann var búinn að teikna alla sökklana upp í þrívídd, þá datt mér í hug hvort ekki væri hægt að notast við þessar teikningar til þess að magntaka, og eftir smá basl fann ég út úr því og það er skemmst frá því að segja að þetta er alger snilld. Rétt fyrir hádegi var kallað á mig og mér sagt að koma strax út á byggingarsvæði því að úttektarmaðurinn væri að koma (það er hann sem gefur út leyfi til þess að steypa og ef hann er ekki ánægður, þá verður ekki steypt) hann kom með tvo aðra verkfræðinga með sér til þess að allt yrði nú í lagi. Allavega, þá var ég kynntur fyrir honum, með þessum orðum "þetta er Jón Eyjólfsson, hann er maðurinn sem þú átt eftir að kljást við í framtíðinni...........Úff það fór kuldahrollur niður eftir bakinu á mér, ertu ekki að grínast, ég er sko langt frá því að vera tilbúinn í svoleiðis lagað, þarf kannski að vera nokkur ár í bransanum áður en ég fer að vinna við svona stór verkefni, vonandi var þetta bara draumur. Við sjáum hvað setur.

Yfir og út

miðvikudagur, 25. apríl 2007

Dagur 3

Heil og sæl. Nú er klukkan 10, og ég er enn í vinnuni, þetta er þvílíkt spennandi og áhugavert. Í dag fór ég í höfuðstöðvarnar til þess að fá tölvuna mína skráða inn á netverkið hjá ÍSTAK, vá þetta er þvílíkt flott hús, geggjaður arkitektúr. Hvað meira hmmm. já ég fékk nýjan síma í dag. Stúlkan í eldhúsinu er búin að vera lasinn síðan ég kom, þannig að við skiptumst á að þrífa og vaska upp, þá kemur reynslan af sjónum sér vel. Jæja best að fara að koma sér fyrir í herberginu, búa um og taka upp úr töskunum.

Yfir og út

þriðjudagur, 24. apríl 2007

Dagur 2.


Heil og sæl, Þá er fyrsti dagurinn í vinnuni búinn. Mér leist bara vel á þetta, það var vel tekið á móti mér og mér sýnist að ég fái að kljást við spennandi verkefni, eins og magntöku á steypustyrktarjárni, steypu, steypumótum og fl. Mér var skaffaður bílaleigubíll í dag, sem ég hef til afnota í ótilgreindan tíma, ekki slæmt þaðJ og á morgun á að skaffa mér síma og svefnskála .

Það er skemmst frá því að segja að hérna er búið að vera vitlaust veður í dag, en hlýtt. Uppi á hellisheiði var varla stætt fyrir roki.

Mig langar að óska Valþóri, vini mínum til hamingju með afmælið, sem er í dag.

Það er sosum ekki frá neinu meira að segja í dag, nema kannski til hamingju með sigurinn manutd, menn. Yfir og út.

mánudagur, 23. apríl 2007

Dagur eitt.


Heil og sæl, góðir hálsar. Verið þið öll velkomin á bloggsvæðið mitt. Ástæða þess að ég ætla nú að fara að blogga eins og allir hinir, er sú að ég er kominn langt í burtu frá fjölskyldu mini, þ.e. upp á Ísland. Þar sem ég ætla að eyða, allavega næstu 3 mánuðum í vinnu hjá ÍSTAK uppi á hellisheiði, við að byggja þar gufuaflsvirkjun. Héðan langar mig að miðla, til fjölskyldu minnar og vina. Því sem ég er að fást við, frá degi til dags. Það getur varla verið spennandi, en kannski að einhverjir hafi gaman að því.

Í dag hef ég verið mikið á ferðalagi, og er ansi hreint þreyttur eftir 2 og hálfan tíma í lest, 2ja tíma hangs á Kastrup og svo 3ja tíma flug heim, eftir aðeins klukkutíma svefn. (pínku spenntur að komast á klakann eftir 15 mánaða aðskilnað) Pabbi sótti mig á flugvöllin og þegar við komum heim til mömmu beið mín þessi líka dýrindis Ýsa í raspi og alles, takk fyrir mig. Við mamma keyrðum pabba í vinnuna og skruppum síðan í kaffi til Lindu systur. Vá gamla bara búin að taka allt í gegn hjá sér. Linda þú ert snilli. Svo hitti ég Helenu, Óla Björn og Írisi Hildi og síðast en ekki síst, hann Viktor frænda, sem er alger hetja, sá ætlar nú að sýna okkur hvernig manni á að láta sér batna á methraða. Ég vona bara að allt gangi eins vel héðan í frá eins og það hefur gengið hingað til. Síðan skruppum við mamma aðeins í bíltúr um borgina, vá,vá,vá hvað það er búið að byggja, maður lifandi. Við komum síðan hingað á suðurbrautina, og ég steinsofnaði í lazyboyinum hanns pabba. nú er ég að pæla í hvort ég hafi orku í að skreppa út í kvöld, ég ætla allavega að skreppa í sturtu fyrst, og sjá svo til.

Krúsídúllan hún Vilborg Unnur á afmæli í dag, hún er 14. ára þessi snillingur. Til hamingju elskan mín, það er ekki gott að fara frá ykkur á afmælisdaginn þinn. Vonandi átt þú góðan dag, elskan mín.