
Elsku rúsínubollan mín, hún Sigríður Soffía, kom í heiminn fyrir 13 árum, sléttum. Þetta er yndisleg, fyndin, uppátækjasöm, stundum skapstór,(sem er gott) hjartahlý manneskja, sem fólk laðast að. Hún má ekkert aumt sjá. Hún var búin að læra á þvottavél, pínkulítil og farin að hjálpa til á heimilinu. Hún er alltaf til í að passa systkyni sín, of er langt frá því að vera mesti sóðinn í systkynahópnum. Hún hefur frá mörgu, skemmtilegu að segja, en talar svolítið hratt. Hana langar að verða leikari, og er að leita sér að sumarstarfi við leiklist. (ef einhver af lesendunum veit um "gigg" fyrir hana, þá vinsamlega hafið samband)
Til hamingju með daginn, elskan mín, og megir þú eiga góðan dag.
Þá að öðru, í kvöld fékk ég góða heimsókn, hingað upp á fjöll. Þeir Garðar Örn og Björgvin Marínó , litu til mín. Það var drukkið mikið af kaffi og borðaður slatti af Frón kremkexi. Svo fórum við út á byggingarstaðinn og ég sýndi þeim það sem við erum að fást við. Þeir sögðu mér upp og ofan af því sem þeir eru að fást við í sínu starfi, og er ég sannfærður um að betri árgangur hefur ekki komið út úr Vitus Bering. þarna er varla þverfótað fyrir snillingum.
Takk fyrir komuna strákar.
Yfir og út.







