laugardagur, 18. ágúst 2007

Jæja..

Þá er komið að því, orðið frekar langt síðan að ég bullaði síðast. Það er hellst í fréttum að dætur mínar, þær Vilborg og Sigríður er nú búnar að fermast, þetta var frábær dagur og verður hann lengi í minnum hafður fyrir það hvað hann var vel heppnaður og skemmtilegur.
Eftir ferminguna tók við rúm vika af heimsóknum og matarboðum, vá hvað við eigum mikið af skemmtilegum vinum, verst hvað við hittum þau sjaldan.
Núna er fjölskyldan komin til danmerkur og börnin byrjuð í skólanum. Litli drengurinn minn var að byrja í 6 ára bekk, það var hrikalega erfitt að geta ekki verið með honum á þessari stóru stundu í lífi hanns. Konan er núna stödd í Amsterdam með vinkonum sínum í "menningarferð" þær eru að leita sér að klossum og túlípönum, þannig að fjölskyldan er frekar dreifð, um þessar mundir. Ég ætla að fara heim um mánaðarmótin til að vera með þeim í nokkra daga, ég hlakka alveg hrikalega til, þetta er svipuð tilfinning og þegar maður var krakki að hlakka til jólanna.
Vinnan gengur vel, það eru margir búnir að vera í sumarfríum, þannig að ég hef þurft að bregða mér alls konar hlutverk til þess að halda hlutunum gangandi á vinnusvæðinu, alveg frá hlutverki staðarstjóra til járnabindingarmanns, nú fer að styttast í að hlutirnir komist aftur í eðlilegt horf. Það fer nú að styttast í að við eigum að afhenda orkuveitunni virkjunina, þannig að nú má ekkert klikka, það verður hreinlega allt að ganga upp, til þess að við náum þessu marki, þannig að ég sé fram á frakar geggjaða daga.

Ég sakna:
Konunnar minnar, barnanna minna og hundsinns míns.

Líka:
Grillsinns míns, heimilisinns míns, rúmsinns míns, skólafélaga minna og vina minna.

Meira að segja líka:
Skjalbökunnar, páfagauksinns og þess að fara út til að slá grasið (hlýt að vera veikur)

Ég vona að þetta vinnubrölt mitt, sé þess virði, að vera án allra þessara hluta sem eru svo stór partur af lífi mínu:-S

föstudagur, 20. júlí 2007

Saman á ný

Heil og sæl

Loksinns er fjölskyldan öll sameinuð, reyndar ekki haima hjá okkur, heldur á Íslandi. Já nú er kominn tími til að ferma þær Vilborgu og Sigríði, þannig að hún Soffía mín á annasama daga í vændum, vonandi að henni gangi vel með þetta allt saman.
Um síðustu helgi skrapp ég til danmerkur til þess að vera hjá konunni, það var frábært. Við fórum að skoða hús sem við erum að pæla í, og var það pínku sjokk að koma inn í það, þar sem ekki hefur verið gert handtak þar í 30 ár, veggfóðrið gott fólk, vá... http://www.nybolig.dk/index.jsp?page=PrivatBolig.jsp&sagsnr=15216&forretningsnr=100250
Helgina þar á undan fór ég með blessaðar dúfurnar mínar í sumarbústað, sem starfsmannafélag Ístaks á, og ég fékk leigðan fyrir algera heppni. Við áttum saman frábæra helgi. Mamma og pabbi komu á laugardeginum og voru með okkur eina nótt, Kristín Alma kom líka með litlu systur sína, hana Sölku. Við borðuðum öll saman og áttum saman góðar stundir. Um kvöldið fórum við, ég og stelpurnar á varðeld og tónleika, þar fundu stelpurnar frænku sína hana Karen, dóttur Gumma og Kötu, hún fór með okkur til foreldra sinna, og voru það fagnaðarfundir, sátum við hjá þeim eitthvað fram á nótt. Daginn eftir, fórum við í að þrífa bústaðinn og drífa okkur í bæinn, en þar sem stelpurnar varu svo duglegar að hjálpa til við að þrífa, þá fengu þær að leigja sér hesta í klukkutíma, og skreppa í útreiðatúr.

Yfir og út

miðvikudagur, 4. júlí 2007

Hólí mólí




Var staddur hérna uppi á heiði um daginn, sem betur fer var ég með síma með myndavél, og gat náð þessu kódak mómenti, það er ótrúlegt hvað það getur verið fallegt á klakanum, stundum.


Set líka inn, eina mynd af virkjuninni sem við erum að vinna við, tekna ofan af heiði.


Eins og þið sjáið, þá er nánast logn, þegar þessi mynd er tekin, eitthvað sem ekki gerist oft á Hellisheiði.

fimmtudagur, 28. júní 2007

Blíða.

Heil og sæl

Jæja, þá er loksinns komið almennilegt veður, hérna á heiðinni. Ótrúlegt hvað allt verður eitthvað léttara þegar vel viðrar. Í vinnunni er klikkað að gera, þannig að dagarnir eru fljótir að líða, sem er gott. Á næstu 5 virku dögum stendur til að steypa 476m3 af steypu, þannig að það er eins gott að ekkert klikki, maður verður að vera með opin augun, reyna að koma í veg fyrir mistök, helst áður en þau gerast. Hjá okkur eru staddir tveir Japanir, sem eru komnir gagngert til þess að tryggja að engin mistök eigi sér stað, varðandi bolta sem túrbínurnar eiga að standa á, og eru skekkjumörkin +/- 2mm. og verð ég að segja, smiðunum okkar til hróss að eftir að Það er búið að mæla 70% þá hafa ekki fundist neinar skekkjur. Nú er bara að krossa puttana og vona að restin sé eins góð og það sem búið er. Nú er að fara í hönd sá tími sem hvað flestir fara í sumarfrí, svo það verður spennandi að sjá hvernig okkur gengur að halda áætlun. Annars er það fyndið með okkur Íslendingana, að það kemur okkur alltaf jafn mikið á óvart að starfsmennirnir skuli ætla sér í sumarfrí, svolítið ólíkir dönunum að þessu leyti, t.d. allar tímaáætlanir eru miðaðar við að allir séu á staðnum, allt sumarið, þannig að þettu verður pínku krefjandi.

Á fimmtudaginn í næstu viku fer restin af stelpunum mínum að tínast til landsinns, þær ætla að fara á undan mömmu sinni, til þess að geta notið þess að láta ömmur sínar og afa dekra aðeins við sig, og auðvitað vera með vinum sínum, vá hvað það verður gaman að hitta þær.

Yfir og út

föstudagur, 22. júní 2007

Veiði


Að fara að veiða, er líklega, það skemmtilegasta sem ég geri í frístundum mínum. Að fara með góðum hóp, að veiða getur verið ómetanlegt. Fyrir nokkrum árum varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að fara með tveimur félögum mínum í Vatnsá, sem rennur úr Heiðarvatni, rétt fyrir ofan Vík í mýrdal. Þetta er einn fallegasti staður sem ég hef komið á á Íslandi, og áttum við þar frábæra daga saman. Eftir þennan túr var einróma ákveðið að þessa á myndum við heimsækja reglulega í framtíðinni. En, það kom babb í bátinn, Svisslendingur nokkur, tók sig til og keypti upp allar jarðir sem að ánni koma, og hefur, frá þeirri stundu, haldið ánni, fyrir sig. Nú spyr ég, er þetta í lagi? Hvað fyndist fólki ef einhver myndi kaupa einhverja af náttúruperlum okkar? Kannski eru fáir að pæla í þessu vegna þess að þetta snertir ekki svo marga? Ég veit ekki með ykkur, en ég persónulega er ekki sáttur. Mér finnst að ef útlendingar geta keypt ár eins og þessa og haft þær út af fyrir sig, þá sé eitthvað að. Ég er pottþéttur á því að Íslendingur gæti aldrei keypt eitthvað ámóta í Sviss og haft það út af fyrir sig. Kannski er ég svona vitlaus, en ég vill að að þessi þróun verði stöðvuð, og það strax. Hann má alveg eiga þetta fyrir mér, en hann á ekki að geta komið í veg fyrir að Íslendingar geti áfram veitt í ánni, því það finnst mér að ætti að vera stjórnarskrárbundinn réttur okkar.

Yfir og út

þriðjudagur, 19. júní 2007

Vá....

Fór í dag í starfsviðtal, hjá forstjóranum, varðandi áframhaldandi starf hjá fyrirtækinu. Það er skemmst frá því að segja að ég er orðinn fastur starfsmaður hjá ÍSTAK. Vá skrýtin tilfinning. Á annan bóginn er ég rosa glaður að vera búinn að landa góðum samningi, og á hinn bóginn dapur að vera búinn að koma mér í þá aðstöðu að ég skuli vera staddur hér á Íslandi, meðan fjölskyldan mín er úti í danmörku. Það jákvæða er að ég er búinn að tryggja eina heimferð í mánuði, til þess að vera með þeim. Við sjáum hvað setur....

Yfir og út

fimmtudagur, 14. júní 2007

Jibbí........

Ég ætla heim um helgina....
Guð er góður....


Yfir og Út

mánudagur, 11. júní 2007

Dagur 49


Heil og sæl

Langt síðan ég hef bloggað, enda hefur fátt spennandi verið að gerast hjá mér. Á föstudaginn fór ég heim til mömmu og pabba til að skipta um tvær rúður hjá þeim, eitthvað sem átti ekki að taka meira en tvo tíma, en viti menn, snillarnir sem settu rúðurnar í á sínum tíma gjörsamlega steyptu þær í kítti, þannig að það var ekkert annað hægt en að mölva þær (og láta litla bróður sópa upp brotunum, tíhí) þetta tveggja tíma djobb endaði svo sem fimm tíma puð. En ég fékk gott að borða hjá mömmu, þannig að allir voru sáttir. Á laugardagsmorguninn fór ég að hjálpa félaga mínum, honum Arnari að smíða sólpall, fyrir framan nýja húsið hanns, andlega hafði ég engu gleymt, en líkamlega var ég alveg týndur, össss. Um kvöldið fór ég síðan að hitta Björgvin, og stungum við úr nokkrum baukum, áður en við drifum okkur niður í bæ, en þar voru fyrir þeir Bjarni og Per, snillingur, sem alltaf fer á kostum. Við fórum fyrst á Dubliners, en þar var trúbador alveg hreint fjandi góður, það er ekkert smá skrýtin tilfinning að sitja inni á stað eins og Dubliners án þess að vera að kafna úr sígarettureyk, þetta er alger snilld, snilld, snilld. Eftir þetta fórum við á Nasa, en þar voru tónleikar með Sssól, ég hef aldrei komið þangað áður, hvílíkur staður, var einmitt að spá í hve mörgum góðum tónleikum ég hef misst af í þessu húsi, þarna var alveg þrælgaman. Eftir þetta fórum við bjöggi að leita okkur af leigubíl , það tók drjúgan tíma og fundum við loks einn uppi á Hlemmi. Daginn eftir dreif ég mig aftur til hanns Arnars til að vinna í sólpallinum, og eftir það var mér boðið í lambalæri heima hjá Trausta og Elínu í nýja húsinu þeirra í Hafnarfirðinum, þegar við höfðum sporðrennt matnum, fórum við Arnar á FH/Fylkir á kaplakrika, þvílík heppni því þetta var líklega einn besti leikur tímabilsinns, slagsmál, rauð spjöld og alles, og ég verð að segja að Fylkismenn stóðu sig með prýði, þótt þeir hefðu ekki getað nýtt öll færin sem þeir fengu. Í dag er ég búinn að vera með með strengi og harðsperrur af verstu sort en er þó miklu skárri eftir sundferðina mína áðan

Yfir og Út

laugardagur, 2. júní 2007

Dagur 40.


Heil og sæl

Ég verð nú að segja að veðrið á Hellisheiðinni er nú ekki spennandi, þessa daganna. Það er búið að vera rok í marga daga, og í dag bættist við þessi líka rigningin, svona til þess að gera þetta ennþá meira spennandi. Ég verð að segja að Danmörk lítur ekki illa út, héðan af heiðinni, hvað veðurfar varðar. Um kl. 3 í dag stytti þú skyndilega upp og vindur hægðist, það var ekki slæmt því að ég og Björgvin, vinur minn drifum okkur á landsleik milli Íslands og Liechtenstein, það er skemmst frá því að segja að veðrið var það eina sem hægt var að njóta, á Laugardalsvellinum, oft hefur Íslenska liðið verið lélegt, en sjaldan sem í dag, það var einna hellst, gamli maðurinn, hann Brynjar Björn, sem nennti þessu. Við sluppum út úr leiknum með jafntefli, sem er skammarlegt. Jæja nog komið af rausi í bili.

Yfir og út

fimmtudagur, 31. maí 2007

1. Júní..Hún á afmæli...


Elsku rúsínubollan mín, hún Sigríður Soffía, kom í heiminn fyrir 13 árum, sléttum. Þetta er yndisleg, fyndin, uppátækjasöm, stundum skapstór,(sem er gott) hjartahlý manneskja, sem fólk laðast að. Hún má ekkert aumt sjá. Hún var búin að læra á þvottavél, pínkulítil og farin að hjálpa til á heimilinu. Hún er alltaf til í að passa systkyni sín, of er langt frá því að vera mesti sóðinn í systkynahópnum. Hún hefur frá mörgu, skemmtilegu að segja, en talar svolítið hratt. Hana langar að verða leikari, og er að leita sér að sumarstarfi við leiklist. (ef einhver af lesendunum veit um "gigg" fyrir hana, þá vinsamlega hafið samband)

Til hamingju með daginn, elskan mín, og megir þú eiga góðan dag.

Þá að öðru, í kvöld fékk ég góða heimsókn, hingað upp á fjöll. Þeir Garðar Örn og Björgvin Marínó , litu til mín. Það var drukkið mikið af kaffi og borðaður slatti af Frón kremkexi. Svo fórum við út á byggingarstaðinn og ég sýndi þeim það sem við erum að fást við. Þeir sögðu mér upp og ofan af því sem þeir eru að fást við í sínu starfi, og er ég sannfærður um að betri árgangur hefur ekki komið út úr Vitus Bering. þarna er varla þverfótað fyrir snillingum.

Takk fyrir komuna strákar.

Yfir og út.

miðvikudagur, 30. maí 2007

Hún á afmæli í dag....

Ég vill óska ástinni minni innilega til hamingju með daginn, sem er í dag. Hún er orðin 29 ára þessi elska. (allavega)

þriðjudagur, 29. maí 2007

Dagur 37


Heil og sæl

Jæja kominn aftur í vinnuna, það var ekki auðvellt að kveðja fjölskylduna eftir þessa stuttu heimsókn um helgina. Ég er ekki viss um að ég geti haldið það út að vera hér í einn mánuð og tuttugu daga til viðbótar án þess að hitta þau, reikna með því að ég eigi eftir að skreppa heim, allavega einu sinni í millitíðinni.

Þegar ég steig út úr lestinni í Horsens, þá tók á móti mér, stórglæsileg kona sem ég kannaðist við, það tók mig smá tíma að átta mig.... Svo sá ég að þetta var konan mín, VÁ, hvað hún leit vel út, það er greinilegt að fjarvera mín hefur ekki haft slæm áhrif á hana:-s enda er hún fallegasta, skemmtilegasta og klárasta kona í víðri veröld.

Það veitir mér alveg ótrúlega gleði að sjá hve hamingjusöm og sæl, konan mín er, enda þekki ég fáa sem eiga það betur skilið, eftir 15 ára sambúð með mér.

Vinnan gengur vel það er nóg að gera og allt á áætlun (þeir þekkja það sem hafa verið með mér í skóla að það er ekkert mál að fara inn í áætlunina og breyta henni bara sér í hag;-)

Í kvöld bauð félagi minn mér út að borða á American Style, og verð ég að segja að eftir að hafa ekki komið þangað í nokkur ár, þá eru alveg ruddalega góðir borgarar þar.

Ég hafði ætlað mér að fara í sund og synda 15-20 km. í kvöld....en læt það bíða til morgunns.

Yfir og út

fimmtudagur, 24. maí 2007

Dagur 31


Heil og sæl


Jæja nú er komið að því....Ég er að fara heim í fyrramálið:-) Enda er ég farinn að sakna fjölskyldunnar frekar mikið. Einn mánuður að baki, samt er tíminn búinn að vera ansi fljótur að líða. Ég fæ að njóta þess að vera með þeim í 3 daga, kem svo til baka á mánudaginn.

Yfir og út

sunnudagur, 20. maí 2007

Dagur 28


Heil og sæl

Jæja þá er frábær helgi að baki, með skemmtilegu fólki og í fallegri náttúru. Síðdegis á föstudaginn lagði ég af stað norður á Akureyri að hitta hann Valþór, ég var kominn norður milli kl 7 og 8 við kíktum aðeina á húsið hanns Valþórs og logðum síðan af stað austur í Reykjadal, við komum þar um 9 leytið, til hanns Stefáns Kjartanssonar, tengdaföður Valþórs, skömmu seinna kom svo Brynjar, sonur Valþórs. Við borðuðum grillmat og stungum úr nokkrum baukum, áður en við fórum að sofa. (sem var reyndar ekki fyrr en undir morgun)

Næsta morgun fórum við á fætur um 9 leytið, fengum okkur hafragraut og kaffi og drifum okkur svo niður að á, nánar tiltekið á núpasvæðið, sem tilheyrir bænum Núpum í Aðaldal. Það var skítaveður, kalt og rok, en við létum það ekkert á okkur fá. Stefán fékk mjög fljótlega fisk, þannig að vonir okkar glæddust með að nú værum við að fara að lenda í veislu, ens svo var ekki. Við börðumst í nokkra klukkutíma við þetta, en það var ekki fyrr en í restina að eitthvað fór að gerast. Fyrst setti Valþór í fisk, en missti, svo náði ég einum þrælsprækum. Flótlega upp úr þessu gáfumst við upp sökum kulda og vosbúðar. Við drifum okkur upp í Laugabæ, sem er veitingastaður uppi í Reykjadal, þar sáum við restina af bikarúrslitaleiknum. Um kvöldið fórum við svo aftur, niður á Laugarból til að fá okkur að borða. Eftir matinn byjuðu tónleikar á staðnum með hjómsveit, sem heitir Hrafnaspark, og eru frábærir tónlistarmenn, þeir spila sígaunajazz, tveir gítarar og kontrabassi, þetta var frábær skemmtun og góð viðbót á frábærum degi.

Í morgun héldum síðan til veið í Vestmannsvatni, sem er í Reykjadalnum, þar var ágætis veiði og fengum við allir fisk, Valþór einn, Stefán einn og ég datt í lukkupottinn og fékk þrjá, sem hann Valþór ætlar að færa henni móður sinni og vona ég að henni líki vel. Takk fyrir mig strákar, þetta var frábær helgi:-)

Yfir og út

þriðjudagur, 15. maí 2007

Dagur 23


Loksinns, loksinns, loksinns kominn alvöru kall í brúnna.

Sam Allardyce var í morgun ráðinn knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Newcastle til næstu þriggja ára og verður hann kynntur til sögunnar á fréttamannafundi sem Newcastle hefur boðað til í hádeginu.

Allardyce, sem hætti störfum hjá Bolton þegar tvær umferðir af úrvalsdeildinni, tekur við liði Newcastle af Glenn Roeder sem fékk að taka poka sinn fyrir lokaumferðina.

Allardyce, sem er 52 ára gamall, stóð til boða að taka við Newcastle fyrir þremur árum en hann hafnaði því boði enda hafði hann augastað á að taka við þjálfun enska landsliðsins en varð ekki að ósk sinni.

Allardyce er ætlað að koma Newcastle í fremstu röð en mikill vandræðagangur hefur verið á þessu stóra félagi mörg undanfarin ár. Newcaste hefur ekki unnið stóran titil síðan 1955 þegar liðið bar sigur úr býtum í bikarkeppninni.


Gísli Már var að hringja í mig.. Við ætlum að kíkja í Þorleifslækinn, eftir kvöldmatinn, Júhú:-)

mánudagur, 14. maí 2007

Dagur 22


Heil og sæl

Jæja loksinns er komið gott veður hérna á "fjöllum" það var alveg hreint ágætt í dag. Í gær fórum við Björgvin í bíó, fórum að sjá Mýrina, örugglega með þeim síðustu hér á landi til að sjá þessa snilldarræmu. Þetta er að mínu mati langbesta Íslenska ræman hingað til.

Í kvöld fór ég í heimsókn til vina okkar Soffíu, þeirra Viggó og Magneu, Þau voru að flytja inn í nýja húsið sitt í kópavoginum. Það er virkilega huggulegt, og frábærlega staðsett. Til hamingju krakkar:-) Um næstu helgi ætla ég að leggja land undir fót, og fara að heimsækja vin minn hann Valþór, við ætlum að hittast á Akureyri og ætlum við að eyða helginni í Aðaldalnum. Það er skemmst frá því að segja að ég hlakka til eins og krakka hlakkar til jólanna, get ekki beðið. Ég vona bara að yfirmaður minn hér sjái aumur á mér og reddi mér bíl til afnota um helgina. Annars verð ég að leggjast á vini og ættingja til þess að redda mér bíl.

Ég sakna: elskunnar minnar, dætra minna, sonar míns, hundsinns míns, rúmsinns, vinanna minna, heimilisinns, og veðursinns í DK.

Yfir og út

sunnudagur, 13. maí 2007

Dagur..............


Heil og sæl

Í dag er sunnudagur, og ég sit hérna á skrifstofunni minni, ég er að berjast við að búa til reikning síðasta mánaðar, sem byggist aðallega á því að setja inn í skjal þær magntölur sem framkvæmdar voru í síðasta mánuði. Ég er með tvo skjái tengda við tölvuna, á hinum skjánum er ég að horfa á beina útsendingu frá leik manutd og west ham. (vonandi fær west ham stig úr leiknum og hangir í deildinni) Nú ætla ég að setja hérna inn leiðbeiningar til þeirra sem ekki kunna að horfa á beina útsendingar af netinu, því þetta er snilld..Þið farið inn á heimasíðu sem heitir http://www.rojadirecta.com/
Þarna sjáið þið þá leiki sem í boði eru. (Jess west ham vou að skora) til þess að geta horft á leikina þá þurfið þið að sækja ykkur forrit, þau helstu eru: http://www.sopcast.com/download/
Þetta er mjög gott forrit, eiginlega það þem ég hef oftast notað, svo eru líka forrit eins og http://www.download.com/PPMate/3000-2017_4-10603770.html
og http://tvants.en.softonic.com/
og http://www.pprecorder.com/iptv-pcast.htm
Með þessi forrit inn á tölvunni eru ykkur flestir leikir boðlegir. Það er líka ENDALAUST magn af sjónvarpsefni í boði inni á þessum forritum, en ég hef ekki nennt að skoða það almennilega. Það sem þig gerið er að eftir að þið hafið sótt þessi forrit, þá farið þið inn á heimsíðuna, sem ég nefndi hér í byrjun, klikkið einu sinni á leikinn sem ykkur langar að horfa á, þá birtast undir honum tenglar, þið veljið eitt af forritunum sem þið voruð að sækja ykkur áður (tvísmellið) þá ætti að koma upp gluggi, smella þar á ok, og bíða aðeins, það gætu kannski liðið 2 mínútur áður en tölvan nær að tengja sig. Svo er bara að njóta þess að horfa á skemmtilegustu íþrótt í heimi:-) Og þið sem hafið ekki gaman af fótbolta, finnið ykkur bara eitthvað við ykkar hæfi þarna. Góða skemmtun.

Yfir og út

þriðjudagur, 8. maí 2007

Dagur 16


Heil og sæl

Dagurinn í dag var frekar rólegur, hérna í vinnuni, allavega miðað við það sem af er. það var ekkert steypt í dag þannig að ég hef mest verið í að reikna út, hversu margir vinnutímar eru á bak við td. hvern fermeter í mótum og hvern rúmmeter af steypu. Þetta eru upplýsingar sem yfirmaður minn þarf að hafa haldbærar, örugglega, þegar hann fer á fund hjá yfirstjórninni í Reykjavík. Í kvöld var mér boðið í kvöldmat heima hjá systur minni, henni Lindu, þar hitti ég foreldra mína og auðvitað hana Sigríði mína, en hún kom þangað með mömmu og pabba. Maður verður bara hálf hræddur að hitta "litlu" frændur sína, sem eru báðir orðnir hausnum hærri en ég, gaman að sjá hvað allir eru að þroskast mikið. Sigríður var mest allan tímann úti að leika sér með Helenu frænku, og er ekki annað að sjá en að þeim komi alveg rosalega vel saman. Litli stubbur, hann Viktor var í þessu líka stuðinu, hlóp um allt með tilheyrandi látum, gama að sjá hve hress hann er eftir öll veikindin, vona bara að bati hanns gangi vel. Eftir matinn skutlaði ég Sigríði til fólksinns sem hún gistir hjá, svo fór ég að skutla mömmu og pabba heim, vegna þess að þau þurftu að setja bílinn sinn á verkstæði, vegna einhverra furðuhlóða sem frá honum bárust. Ég keyrði síðann bláfjallahringinn hingað uppeftir. Vá hvað það er búið að byggja rosalega mikið í Hafnarfirði, þarna inni í hrauninu, maður,maður,maður, bara skilur þetta ekki.

Yfir og út

mánudagur, 7. maí 2007

Dagur 11, 12, 13, 14 og 15


Heil og sæl

Jæja nú eru tvær vikur liðnar, og vá ....púff.... hvað þær voru fljótar að líða. Á laugardaginn hitti ég, vini mína, þá Tóta (Þórir) og Per, sem er Dani og er í praktík á Íslandi, og við fórum út að borða saman. Það var rosa gaman að fara aðeins í menninguna, og hitta fólk sem er ekki í vinnugallanum.
Á eftir fórum við heim til tengdaforeldra minna, og fengum að sitja þar, vegna þess að enginn af okkur hefur upp á boðlegt húsnæði að bjóða. Per, var alveg hugfanginn af útsýninu út um stofugluggann hjá tengdó. Seinna um kvöldið kom svo Bjöggi til okkar, og ætluðum við að skreppa í bæinn, en það var svo gaman hjá okkur að það varð aldrei neitt úr því. Við bara sátum þarna og höfðum frábæran félagsskap að tengdaforeldrum mínum. Það er skemmst frá því að segja að við skemmtum okkur alveg konunglega, enda var Bjöggi alveg í essinu sínu, og reytti af sér brandarana. Garðar ætlaði að hitta okkur en það varð aldrei neitt af því, því miður. Takk fyrir okkur, mínir kæru tengdaforeldrar.

Í dag var svolítið stór dagur hjá mér hérna í vinnunni, vegn þess að ég þurfti að panta og fá úttekt að járnagrind í vélarundirstöðu sem til stóð að steypa. Þetta var ekki nema 148 m3 af steypu í einum hnalli. Þetta fór allt vel og hafði úttektarmaðurinn ekki út á neitt að setja, og var bara ánægður með það. Jæja nenni ekki að bulla meira, gott fólk.

Yfir og út

miðvikudagur, 2. maí 2007

Dagur 10


Heil og sæl

Í hádeginu í dag var ég boðaður á fund, uppi í skíðaskálanum í Hveradölum, þar héldu tveir sjúkraflutnigamenn fyrirlestur um öryggi á vinnustaðnum, og ryfjuðu upp helstu atriði í skyndihjálp. Það er greinilegt að það er að verða vakning, varðandi öryggismál hérna á Íslandi, þau eru greinilega ekki eitthvað sem maður getur ekki bara ýtt til hliðar, eins og kannski hefur verið á síðustu árum. Þetta var rosalega fróðlegur fundur, og mér fannst að allt sem ég er búinn að vera að fussa yfir í skólanum, loksinns meika sens, eins og reyndar margt annað sem ég er að reka mig á undanfarna daga. Ég verð að segja það að gæðin á teikningunum sem við erum að vinna eftir eru frekar slök, ég er td. nokkuð viss um að ef við í Vitus Bering myndum mæta með svona teikningar í próf, þá yrði okkur sagt að taka önnina aftur. Við fáum allar teikningar á læstu formi sem ekki á að vera hægt að eiga við, og á þessum teikningum, td. plönum er hrúgað bókstaflega öllu eins og járnum ,stokkum, lokum, málsetningum á þessu öllu saman í einn hrærigraut, þetta er eins og að horfa ofan í skál af satafasúpu og reyna að fá einhvern botn í hana. úffúffúff. Kannski er þetta nám okkar ekki svo vitlaust eftir allt saman. Jæja farinn í koju.

Yfir og út

þriðjudagur, 1. maí 2007

Dagur 8 og 9


Heil og sæl

Í dag er 1. mai og allir hér á vinnustaðnum í fríi, þannig að ég sit hérna inni á skrifstofu og "sörfa" um netheima. hef ekki kíkt á þessi reglulegu blog, sem ég skoðaði daglega meðan ég var í skólanum. Í gær fékk ég þá snilldarhugmynd að fara snemma að sofa, eitthvað sem ég hef ekki gert lengi, viti menn kl. hálf átta vaknaði ég, viðþolslaus af bakverkjum, kannski var ástæða fyrir því að ég er ekki þessi faraaðsofasnemmatýpa. Ég er að pæla í, fyrst ég hef allan daginn fyrir mér, að skreppa austur fyrir fjall, kannski skreppa í sund, og kíkja svo á Gísla og Ingu, sem eru að koma sér fyrir á Selfossi. Talandi um sund, ég fór í Laugardalslaugina fyrir helgi, hef ekki komið þar í nokkur ár (það er búið að færa innganginn) ég s.s. labba inn um nýja innganginn held á 200 kalli, og rétti drengnum í afgreiðslunni, hann tekur við peningunum og lítur á mig og segir, það kostar 350.....HA ertu ekki að grínast, úti í Danmörku þar sem ég bý kostar c.a. 350 kr í sund, en þar þarf að hita upp hvern einasta líter af vatni með rafmagni sem by the way er alveg fáránlega dýrt. Hvernig geta Íslendingar, réttlætt að í landi þar sem heita vatnið sullast bara upp úr jörðinni, kosti það sama í sund og hjá Dönum, skil ég ekki. Ég er svo reið að ég er brjáluð.

Yfir og Út

sunnudagur, 29. apríl 2007

Dagur 5,6 og 7


GLÆSILEGUR SYSTKYNAHÓPUR

Heil og sæl.

Af mér er það hellst að frétta að ég hef unnið mikið og finnst það óskaplega spennandi, sem ég er að gera. Í gær laugardag fórum ég og Helgi að skoða orkuverið sem er tilbúið, vá þetta er rosa flott, og virðist ekki vera neitt allt of flókið, ef rétt er haldið á spöðunum, úff.... Í gærkvoldi fór ég í mat til tengdó, og fekk þar alveg meiriháttar lambalærisneiðar í raspi, namm,namm. Ég fékk tengdamóður mína til þess að stinga í vél fyrir mig óhreinum þvotti. (takk stína) Ég gisti síðan þar. Eftir hádegið í dag var ég síðan mættur í vinnuna til þess að vera tilbúinn með pöntun sem á að fara á morgun. Óskar mágur og Róbert vinur hanns kíktu í kaffi í dag, og sátum við og spjölluðum í nokkra stund, það var frábært að vera búinn að fá fyrstu heimsóknina. Nú er ég farinn að sjá tvöfallt og ætla að fara að drífa mig í koju.

Yfir og út.

fimmtudagur, 26. apríl 2007

Dagur 4

Heil og sæl.

Dagurinn í dag er búinn að vera ansi hreint spennandi, strax í morgun var ég settur í að magntaka, steypu, steypumót og járnbendingu. Þetta fór nú ekkert sérstaklega hratt af stað hjá mér en tottaðist, þegar leið á daginn komst ér að því að kollegi minn hann Helgi Valur (sem er nýútskrifaður tæknifræðingur úr Vitus Bering) s.s. hann var búinn að teikna alla sökklana upp í þrívídd, þá datt mér í hug hvort ekki væri hægt að notast við þessar teikningar til þess að magntaka, og eftir smá basl fann ég út úr því og það er skemmst frá því að segja að þetta er alger snilld. Rétt fyrir hádegi var kallað á mig og mér sagt að koma strax út á byggingarsvæði því að úttektarmaðurinn væri að koma (það er hann sem gefur út leyfi til þess að steypa og ef hann er ekki ánægður, þá verður ekki steypt) hann kom með tvo aðra verkfræðinga með sér til þess að allt yrði nú í lagi. Allavega, þá var ég kynntur fyrir honum, með þessum orðum "þetta er Jón Eyjólfsson, hann er maðurinn sem þú átt eftir að kljást við í framtíðinni...........Úff það fór kuldahrollur niður eftir bakinu á mér, ertu ekki að grínast, ég er sko langt frá því að vera tilbúinn í svoleiðis lagað, þarf kannski að vera nokkur ár í bransanum áður en ég fer að vinna við svona stór verkefni, vonandi var þetta bara draumur. Við sjáum hvað setur.

Yfir og út

miðvikudagur, 25. apríl 2007

Dagur 3

Heil og sæl. Nú er klukkan 10, og ég er enn í vinnuni, þetta er þvílíkt spennandi og áhugavert. Í dag fór ég í höfuðstöðvarnar til þess að fá tölvuna mína skráða inn á netverkið hjá ÍSTAK, vá þetta er þvílíkt flott hús, geggjaður arkitektúr. Hvað meira hmmm. já ég fékk nýjan síma í dag. Stúlkan í eldhúsinu er búin að vera lasinn síðan ég kom, þannig að við skiptumst á að þrífa og vaska upp, þá kemur reynslan af sjónum sér vel. Jæja best að fara að koma sér fyrir í herberginu, búa um og taka upp úr töskunum.

Yfir og út

þriðjudagur, 24. apríl 2007

Dagur 2.


Heil og sæl, Þá er fyrsti dagurinn í vinnuni búinn. Mér leist bara vel á þetta, það var vel tekið á móti mér og mér sýnist að ég fái að kljást við spennandi verkefni, eins og magntöku á steypustyrktarjárni, steypu, steypumótum og fl. Mér var skaffaður bílaleigubíll í dag, sem ég hef til afnota í ótilgreindan tíma, ekki slæmt þaðJ og á morgun á að skaffa mér síma og svefnskála .

Það er skemmst frá því að segja að hérna er búið að vera vitlaust veður í dag, en hlýtt. Uppi á hellisheiði var varla stætt fyrir roki.

Mig langar að óska Valþóri, vini mínum til hamingju með afmælið, sem er í dag.

Það er sosum ekki frá neinu meira að segja í dag, nema kannski til hamingju með sigurinn manutd, menn. Yfir og út.

mánudagur, 23. apríl 2007

Dagur eitt.


Heil og sæl, góðir hálsar. Verið þið öll velkomin á bloggsvæðið mitt. Ástæða þess að ég ætla nú að fara að blogga eins og allir hinir, er sú að ég er kominn langt í burtu frá fjölskyldu mini, þ.e. upp á Ísland. Þar sem ég ætla að eyða, allavega næstu 3 mánuðum í vinnu hjá ÍSTAK uppi á hellisheiði, við að byggja þar gufuaflsvirkjun. Héðan langar mig að miðla, til fjölskyldu minnar og vina. Því sem ég er að fást við, frá degi til dags. Það getur varla verið spennandi, en kannski að einhverjir hafi gaman að því.

Í dag hef ég verið mikið á ferðalagi, og er ansi hreint þreyttur eftir 2 og hálfan tíma í lest, 2ja tíma hangs á Kastrup og svo 3ja tíma flug heim, eftir aðeins klukkutíma svefn. (pínku spenntur að komast á klakann eftir 15 mánaða aðskilnað) Pabbi sótti mig á flugvöllin og þegar við komum heim til mömmu beið mín þessi líka dýrindis Ýsa í raspi og alles, takk fyrir mig. Við mamma keyrðum pabba í vinnuna og skruppum síðan í kaffi til Lindu systur. Vá gamla bara búin að taka allt í gegn hjá sér. Linda þú ert snilli. Svo hitti ég Helenu, Óla Björn og Írisi Hildi og síðast en ekki síst, hann Viktor frænda, sem er alger hetja, sá ætlar nú að sýna okkur hvernig manni á að láta sér batna á methraða. Ég vona bara að allt gangi eins vel héðan í frá eins og það hefur gengið hingað til. Síðan skruppum við mamma aðeins í bíltúr um borgina, vá,vá,vá hvað það er búið að byggja, maður lifandi. Við komum síðan hingað á suðurbrautina, og ég steinsofnaði í lazyboyinum hanns pabba. nú er ég að pæla í hvort ég hafi orku í að skreppa út í kvöld, ég ætla allavega að skreppa í sturtu fyrst, og sjá svo til.

Krúsídúllan hún Vilborg Unnur á afmæli í dag, hún er 14. ára þessi snillingur. Til hamingju elskan mín, það er ekki gott að fara frá ykkur á afmælisdaginn þinn. Vonandi átt þú góðan dag, elskan mín.