þriðjudagur, 19. júní 2007

Vá....

Fór í dag í starfsviðtal, hjá forstjóranum, varðandi áframhaldandi starf hjá fyrirtækinu. Það er skemmst frá því að segja að ég er orðinn fastur starfsmaður hjá ÍSTAK. Vá skrýtin tilfinning. Á annan bóginn er ég rosa glaður að vera búinn að landa góðum samningi, og á hinn bóginn dapur að vera búinn að koma mér í þá aðstöðu að ég skuli vera staddur hér á Íslandi, meðan fjölskyldan mín er úti í danmörku. Það jákvæða er að ég er búinn að tryggja eina heimferð í mánuði, til þess að vera með þeim. Við sjáum hvað setur....

Yfir og út

6 comments:

Eyjólfur sagði...

Til lukku með það meistari :)

þín elskulega sagði...

ja....ég veit ekki alveg hvað mér finnst um þessa stöðu okkar, en þú ert alla vega snillingur elskan mín. Ég skil vel að þeir vilji ekki missa þig. Til hamingju með þetta.
Ég er búin að ráða Au-pair fyrir mig......Julio frá Spáni ;-)Svo ekki hafa neinar áhyggjur af okkur....múhaaaaahaa.

hjalli sagði...

Hehe jams til lukku með þetta, allt hefur sína kosti og galla en það verður leðiðinlegt að missa þig úr skólanum kall (og barnum):/

Stensballegreifinn sagði...

Hef ekki sést á barnum, í langann, langann, langann tíma. Þannig að það mun enginn sakna mín þaðan.

Eyjólfur sagði...

Jú við söknum þín allir!

Nafnlaus sagði...

tu vera island eg vera vinna aupair danmark gaman. mig dugleg vinna nuna mikid læra islandsk tala tungumal og skura golf i engin föt.

Julio